sumariđ búiđ
08. október 2008 klukkan 00:18
jæja, eftir 4 mánaða sumafrí er víst kominn tími til að halda "heim á leið"
brottför kl.7.00 í fyrramálið svo eftir ca. 3 tíma verð ég farin að gera mig ready til að fara út á völl. förinni er heitið til kaupmannahafnar sem ég mun taka lestina yfir til svíþjóðar og vera hjá henni lindu minni í viku, síðan förum við stöllur með flugi til milanó þann 15 og aldrei að vita nema við stoppum þar í 1 nótt áður en við höldum til rómar þar sem hún linda mín ætlar að vera hjá mér í 2 vikur...
svo það eru ekkert nema spennandi tímar framundan hjá mér, annað en í hinu íslenska efnahagskerfi...hehe!!
kem með hressandi update fyrr en síðar
later sykurpúðar!!

oldie goldie
15. september 2008 klukkan 23:14
today the girl turned
23

15.09.1985 - 15.09.2008
happy birthday to me
23

15.09.1985 - 15.09.2008
happy birthday to me
sumariđ er tíminn...
30. ágúst 2008 klukkan 00:26
2nite we talk shoes
25. júní 2008 klukkan 23:43
after spending hours looking through the world of fashion online i want to share some of it with you. i came across some very interestin stuff, some things a really liked and others that i thought of being horrible. but that is the thing that fashion is all about. if everything would be the same and everybody would like the same things there would be no fashion, at least not how it is today. it is changing fast, you have to be clever and smart to make it in this world, and i think that these people are on the top of their game at the moment.
sigga's favorite at the moment:
"paule ka"

sigga also likes
"alexander mcqueen"

"chloé"

"karl lagerfeld"

"john galliano"

"viktor & rolf"

"marni"

i like how these designers think
"yohji yamamoto"

"marc jacobs"

"karl lagerfeld"
"john galliano"

"junya watanabe"

as you can see if you click on the name of the designers it takes you into theyr detail shots, the only pictures that i look at, they can be cool and interesting...
plz tell me what you think...
"shoes are what make people walk to ther destiny"

...
17. júní 2008 klukkan 21:55
...og hvað svo?
eitt sem ég er að komast að meira og meira, því lengur sem maður er í burtu frá íslandi, því meira fækkar í vinahópnum. en ég er farin að halda að það sé bara partur af því þegar maður er mikið í burtu. maður á sína nokkra bestu vini, sem tala við þig sama hvar í heiminum maður er staddur. en svona er þetta bara, ekki hægt að breyta þessu neitt.
annars hef ég verið að hjálpa soldið mömmu og pabba fyrir austan. hef komist að því að ég mun aldrei verða smiður! er búin að fara og naglhreinsa, negla, skrúfa, hamra og bera timbur einsog vitlaus manneksja, en þetta er ekki mín framtíð. í dag tók ég mér þess vegna meira stöðu sem skemmtari og hamars-réttari. sem ég er langt um betri í en að bera timbur og berja einhverja nagla úr spítum, jebbah!
byrjaði að vinna í gær og líst bara vel á, er með svona skrifstofubás þar sem ég sit við tölvuna allan daginn og skrái inn fyrir landflutninga, mjög fínt og afslappað, engin erfiðisvinna, enda er það ekki mín deild!
læt þetta duga í bili...
--miss lonely in iceland!!

róm-mílan-ísland-london-róm-köben-ísland
12. júní 2008 klukkan 18:18
eftir samtals ca.3ja daga ferðalag á síðustu viku hef ég komið mér ágætlega fyrir í gamla góða herberginu mínu í daltúni og ég held ekki þaðan fyrr en í október.
ekki hika við að slá á þráðinn 867-2804
ég fer fyrr en þig grunar aftur til baka...þúst, tíminn líður hratt...
gleðilegt sumar...mitt er allavegana byrjað og verður eflaust geggjað!

í morgun og á morgun
10. júní 2008 klukkan 15:18
í morgun:
fékk litla barnið mitt bílpróf
og keyrir nú um á gamla góða græna bílnum mínum
á morgun:
legg ég af stað til íslands
er búin að pakka og er að klára að þrífa og gera allt fínt
eina sem hægt er að segja á þessari stundu er þetta:
i see you when i get there, lil'bro will be drivin'

dagur 400 - 3 dagar í ísland
08. júní 2008 klukkan 20:35
ekki á morgun
ekki hinn
heldur hinn
þá legg ég af stað til íslands
síðustu dögum hef ég eytt í mikilli leti, hef verið að rúlla framúr rúminu þegar klukkan er að detta í 4 eða 5 í eftirmiðdaginn og já það er því hægt að segja það að ég sé búin að snúa sólarhringnum við, en hei mister, ég er í fríi, hvað á maður að gera annað en að njóta sín og slappa af...
skrapp í gærkvöldi með jónasi og lauru, og ca.20 öðrum að horfa á bolta með smá bjór, endaði í hörku skralli, fullt af bjórum og long island icete og allir voru hressir. ég þá kannski sérstaklega híhí!
var núna að koma úr bíói með elvu þar sem ég fór aftur að sjá sex and the city myndina, og hún er alveg jafn góð og þegar ég sá hana á miðvikudaginn síðasta. þetta er þokkalega must see fyrir ykkur sem hafið ekki séð hana, ég er sérstakur fan af atriði sem er seint í myndinni þegar mr.big er að biðja sinnar heittelskuðu, svona vil ég að mín verði beðið þegar að því kemur, svo ef prinsinn minn á hvíta hestinum er að lesa þetta (sem ég stór efa þar sem ég hefi ekki ennþá fundið hann) þá er hann kominn með helvíti gott kennslumyndband og ég á eftir að segja já á nó tæm...
á morgun ætlum við elva, jónar og laura að fá okkur hamborgara, pítur og já jújú flatkökur heima hjá henni elvu, s.s. gamla crib-ið mitt á þriðjudaginn held ég að ég sé að fara að hitta aðeins stelpurnar í skólanum, ásamt því að pakka og gera herbergið mitt fínt...
svo er ég bara off to iceland...
see you in a little while!

fram og til baka
06. júní 2008 klukkan 20:48
baka til og fram...
ég veit ekki hvar ég á að byrja.
síðusta vika hefur verið busy og ekki busy.
semsagt á síðasta föstudag fór ég í 2 síðustu prófin mín á fyrsta árinu hérna í róm. þegar þau voru búin var brunað heim og hent í tösku því að 3 mánuðu fyrr hafði ég keypt flug til íslands til að geta verið í afmælinu hennar mömmu. þetta var algjörlega rúsínan í pylsuendanum að klára prófin fyrir mig og ég held að ég hafi verið búin að gera hana helgu mína gráhærða á öllu blaðrinu í mér um það að vera að fara til íslands. klukkan 4 aðfaranótt laugardagsins 31. kom leigubíll og keyrði mig uppá lestarstöð. þaðan tók ég rútu útá flugvöll og þegar ég er að athuga hvar ég á að tjekka mig inn stendur pent á töflunni að fluginu mínu hafi verið seinkað og brottför sé ekki frá róm fyrr en 12.30. þá var klukkan ekki nema 5 um nótt og ég átti framhaldsflug til íslands frá london á sama tíma og vélin átti að fara í loftið frá róm.
upp hófst þvílík dramatík því ekki var hægt að fá neitt flug frá róm til london stansted þennan morguninn og eina ráðið var að hringja með tárin í augunum í foreldrana sem voru ekki síður spenntari en ég að fá mig til íslands. það eina í stöðunni klukkan 6 þennan fagra morgun í róm var að panta flug sem átti að fara í loftið frá milanó kl.17 um daginn. en ástæðan fyrir þessari mikilvægu ferð minni var að sjálfsögðu stórafmæli mömmunnar minnar sem ég vildi sko alls ekki missa af enda sagði hún hreint út áður en að ákvörðun var tekin um að halda uppá herlegheitin að einasta dóttir hennar yrði að vera ef veislu skyldi halda. flug frá mílanó var bókað og átti að lenda kl.19.10 á íslandi. ég fer með leigubíl beinustu leið aftur uppá lestarstöð þar sem ég tók fyrstu lest til mílanó, en það tekur næstum 5 tíma að komast þangað með lest. þegar til mílanó var komið tók við rútuferð sem átti bara að vera 40 mín útá flugvöll en af því að það var slys á autostrada-nu þá tók sú ferð vel á annan tíma og ég vægast sagt var farin að svitna í lófunum ásamt blóðheitum og æstum ítölunum í rútunni. en þegar um 1,5 tími var í brottför komst ég blessunarlega á mitt terminal á vellinum og í loftið fórum við frá mílanó 17.20 og vegna hagstæðra vinda og já ætli englarnir og guð hafi ekki hjálpað til við þetta allt þá lenti vélin í keflavík kl.19.01. ég var fyrsta manneksja sem tók mér stöðu við færibandið að bíða eftir töskunum og viti menn, taskan mín var fyrsta taska út. og ég var sest útí bíl hjá henni sessu minni sem náði í mig um 19.15. ætli ég hafi ekki verið að setja vallarmet í leifsstöð. þá var brunað í bæinn og ég var komin í afmælið hennar mömmu klukkan 8 takk fyrir...
vá það var æðislegt. ég náði þessu...
úfffff
ég skemmti mér svo vel þrátt fyrir af hafa sama og ekkert sofið í 2 daga, farið í 2 próf og ferðast stanslaust í 17 klukkutíma, grátið úr mér augun og glaðst þá var þetta kvöld ólýsanlega skemmtilegt og ég veit ekki hvar ég hefði gert hefði ég ekki "meikað" það til íslands.
átti yndislega daga og kom síðan aftur hingað á þriðjudagskvöldið.
í dag er föstudagur og áðan var ég að breyta flugmiðanum mínum.
það er nú meira vesenið á mér.
ég semsagt er búin að vera ein heima hérna og fór síðan í skólann í gær að athuga hvert planið væri næsta mánuðinn sem þau bönnuðu mér að fara heim...planið var ekkert, ég búin með alla tímana sem ég átti að fara í og öll próf svo ég var laus allra synda í bili frá skólanum, og þau leyfðu mér að fara heim.
svo ég er á heimleið.
flugmiðinn er dagsettur 11.júní
næstu dagar fara í það að taka til og þrífa, pakka og ganga frá og gera herbergið leiguhæft. helga er í mílanó svo að ég hef bara starfað 80% síðustu daga en ég verð nú að fara að venjast því, ég held ég sjái hana ekki fyrr en næsta haust eða seint í sumar aftur.
já, so there you have it!
ég bara get ekki beðið eftir að koma heim, mér leiðist mikið að sitja bara heima hjá mér að gera ekki neitt einsog ég er búin að vera að gera síðan ég kom til baka. svo ég get barasta ekki beðið eftir að byrja að vinna og hitta vini mína eitthvað meira en á einhverjum hlaupum, ég náði ekki einusinni að hitta alla sem ég vildi, en ég hef nægan tíma í sumar. ég fer ekki aftur út fyrr en í október...
annars er em að byrja á morgun og ætlum við nokkrir krakkar að hittast á "ameríska" barnum í hverfinu mínu og horfa á leiki og renna niður nokkrum köldum. það er það eina sem er á planinu mínu næstu daga, jú mig langar kannski að finna mér einsog eitt gott skópar áður en ég fer...jebb ég er klikkuð!
en ég held að þetta sé bara nóg í bili

í endann langar mig að óska elsku litla villanum mínum til hamingju með að vera kominn inn í kvikmyndaskóla íslands og að vera búinn að ná bílprófinu...þú ert bestur...
ísland here i come
5 dagar
i see you when i get there